Gestabók

Skrifa í Gestabók

  • Skráðir notendur gefi upp notandanafn og lykilorð efst á síðunni og skrifi svo færslu í reitinn hér að neðan. Gestabókarfærslan birtist strax.
  • Óskráðir notendur geta einnig skrifað færslu. Athugasemdir þeirra birtast strax og ekki þarf að staðfesta uppgefið netfang.

Gestir:

Linda Anna Ragnarsdóttir

Kastljósið í kvöld / viðtal við annan föður stúlkna sem smygluðu kókaíni, en hafði andlið hulið

Ég skrifa nú, því að ég horfði á Kastljósið í kvöld, þar sem var viðtal við annan föður auk hins líka, en þessi faðir var með andlitið hulið. Því miður gaf RÚV enga skýringu á þessu og á vefsíðu þeirra er ekki hægt að skrifa blogg. Ég skil ekki hvers vegna faðir þessarar stúlku, sem smyglaði 8 kg. af kókaíni til Prag er með hulið andlit, alveg svart. Ég hef aðeins séð glæpamenn í viðtölum hafa hulin andlit. Mér finnst þetta mjög grunsamlegt. Þessi maður á að koma fram og Ríksisjónvarpið á að sýna andlit mannsins, það er heiðarlegt. Einnig var ekki gefið upp nafn þessara manna og ekki sagt hvar hann maðurinn, sem sagðist búa erlendis héti né í hvaða landi hann byggi. Að lokum vildi ég bæta við að þetta er stórglæpur og þessar stúlkur eiga að vera í fangelsi erlendis, eins og aðrir glæpamenn. Ef hún kemur til Íslands, verður hún laus. Íslendingar eru alltaf að vorkenna íslenskum glæpamönnum í fangelsum erlendis og reyna að fá þá heim. Það er margra ára biðlisti að komast í fangelsi hér. Ég sé engan mun á útlendum glæpamanni eða íslenskum glæpamanni, og því að safna fé og o.s.fr. til að fá þá heima. Ég trúi á tékkneska réttarkerfið, hún er ekki í Rússlandi. Kveðja, LA

Linda Anna Ragnarsdóttir, mán. 12. nóv. 2012

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband